
Um okkur
Skrautsteypa - Löggildir múrverktakar
Hjá Skrautsteypu átt þú alltaf samtal við þann sem gerir verkið, Teymið okkar sér um hvert verkefni frá upphafi til enda.
Sagan Okkar
Skrautsteypa – fagmennska að eigin forsendum
Skrautsteypa var stofnuð árið 2024 af Ísak, löggiltum múrarameistara með tæplega 10 ára reynslu í múrverki. Sýnin var skýr frá upphafi, smæð er styrkleiki, ekki galli. Lítið og sérhæft teymi sem gerir hlutina rétt.
Hjá Skrautsteypu átt þú alltaf samtal við þann sem gerir verkið — ekki útsendingamann. Teymið okkar sér um hvert verkefni frá upphafi til enda
Teymið
Við erum lítið og sérhæft teymi þar sem allir eru með húðina í leiknum. Það þýðir að enginn er að selja verk sem aðrir framkvæma. Við metum, við framkvæmum og við stöndum á bak við verkið, saman.
Samanlagt höfum við áratugi af reynslu á verkstöðum, og verið úti að gera við hús í öllu veðri. Þegar við metum verkefni, veljum efni eða leggjum til lausn. Þá kemur það af raunverulegri reynslu, ekki bóklegri þekkingu einni saman.
Hvað við stöndum fyrir
Við tökum að okkur múrverk, flotun, lekaviðgerðir, pússningu, fíltun og svalafrágáng. Lítil verk og stór. Einstaklingar og húsfélög.
En það sem við stöndum raunverulega fyrir er einfalt:
Við gerum hlutina réttu leiðina, ekki léttu leiðina.
Það þýðir vandvirkur undirbúningur. Rétt efni. Frágangur sem endist. Og heiðarleiki gagnvart viðskiptavinum okkar – við segjum þér hvað þarf að gera, ekki bara það sem þú vilt heyra.
